Framlag sjálfboðaliða og starfsfólks Rauða kross Íslands, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og SÁÁ í öryggis- og velferðarstarfi er Íslendingum ómetanlegt.
Atorkusamt fólk, ómæld þekking og reynsla eru hornsteinar þessa öfluga starfs, sem unnið er í þágu allra landsmanna.
Slík starfsemi krefst stöðugs fjármagns. Íslandsspil eru helsti fjárhagslegi bakhjarl áðurnefndra félaga.